Persónuvernd

Persónuverndarstefna Stefánsbúðar

Síðast uppfært: 22. október 2026

Ábyrgðaraðili og samskiptaupplýsingar

SS13 ehf., rekstraraðili Stefánsbúðar og netverslunarinnar stefansbud.com, er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er í þessari stefnu.

Kennitala: 600717-1540
Skráð heimilisfang: Skúlagata 44, 101 Reykjavík
Netfang: stefansvan@gmail.com
Sími: 772 0411

Stefnan lýsir því hvernig við meðhöndlum persónuupplýsingar í tengslum við netkaup og samskipti við viðskiptavini. Fyrirspurnum og beiðnum vegna persónuverndar má beina á ofangreint netfang.

Hvaða upplýsingar vinnum við með?

Þær upplýsingar sem við vinnum með fara eftir samskiptum þínum og viðskiptum við okkur. Þær geta verið:

  • Samskiptaupplýsingar, svo sem nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang.
  • Pöntunarupplýsingar, svo sem keyptar vörur, kaupverð, pöntunarnúmer, afhendingarmáti og valinn afhendingarstaður.
  • Upplýsingar um greiðslustöðu, greiðslumáta og endurgreiðslur.
  • Samskipti vegna fyrirspurna, vöruskila, kvartana og þjónustu.

Upplýsingarnar koma fyrst og fremst frá þér. Einnig fáum við upplýsingar frá greiðsluþjónustu og flutningsaðila um greiðslustöðu og afhendingu pantana.

Þegar þú heimsækir vefinn skráir vefkerfið einnig tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu, gerð vafra og tækis og hvaða síður eru skoðaðar. Ef þú stofnar viðskiptavinareikning vistast þar upplýsingar um pantanir þínar og heimilisföng.

Tilgangur og grundvöllur vinnslu

Við notum upplýsingar um pantanir, greiðslur og afhendingu til að framkvæma kaupsamning við þig. Sama á við þegar við svörum fyrirspurnum sem eru nauðsynlegar til að undirbúa kaup.

Við varðveitum reikninga og önnur nauðsynleg bókhaldsgögn til að uppfylla lagaskyldur.

Meðferð upplýsinga vegna vöruskila, endurgreiðslna og gallamála byggist á framkvæmd kaupsamnings og lagaskyldum okkar gagnvart neytendum.

Ef nauðsynlegt er að varðveita gögn vegna ágreinings getur vinnslan byggst á lögmætum hagsmunum okkar af því að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur. Við takmörkum slíka vinnslu við það sem nauðsynlegt er.

Upplýsingar sem merktar eru nauðsynlegar í pöntunarferlinu þarf að veita svo hægt sé að afgreiða kaupin. Ef þær vantar getur það komið í veg fyrir afgreiðslu eða afhendingu.

Greiðsluupplýsingar

Kortagreiðslur eru afgreiddar í gegnum örugga greiðslugátt. Við fáum aðeins þær upplýsingar um greiðsluna sem eru nauðsynlegar til að staðfesta pöntun og sinna bókhaldi, þjónustu og endurgreiðslum. Full kortanúmer berast okkur ekki.

Greiðsluþjónustuaðili: Teya. Upplýsingar um meðferð Teya á persónuupplýsingum eru á teya.com.

Við bankamillifærslu vinnum við með upplýsingar sem fylgja greiðslunni og eru nauðsynlegar til að tengja hana við rétta pöntun.

Þjónustuaðilar og miðlun upplýsinga

Nauðsynlegum upplýsingum er miðlað til þeirra aðila sem aðstoða við að afgreiða viðskipti og reka netverslunina. Þar getur meðal annars verið um að ræða rekstraraðila netverslunarkerfis, greiðsluþjónustu, flutningsaðila og bókhaldsþjónustu.

Helstu þjónustuaðilar eru:

  • Netverslunarkerfi og hýsing: Shopify.
  • Greiðsluþjónusta: Teya.
  • Sendingar og heimsendingar: Dropp ehf. Dropp fær nafn, farsímanúmer, netfang og afhendingarstað eða heimilisfang til að afhenda pöntunina og senda þér tilkynningar um hana.
  • Bókhald: bókhaldskerfi og bókhaldsþjónusta sem við notum vegna reikninga og uppgjörs.

Þjónustuaðilar fá aðeins þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru fyrir viðkomandi verkefni. Þegar aðili vinnur með persónuupplýsingar fyrir okkar hönd byggist vinnslan á vinnslusamningi. Aðrir aðilar, svo sem greiðsluþjónustuaðilar, geta jafnframt borið sjálfstæða ábyrgð á tiltekinni vinnslu.

Upplýsingar geta einnig verið afhentar stjórnvöldum þegar lög krefjast þess.

Vinnsla utan Evrópska efnahagssvæðisins

Shopify kann að geyma eða vinna upplýsingar utan EES, meðal annars í Kanada og Bandaríkjunum. Slíkur flutningur byggist á ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd, þar sem hún á við, eða á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnarinnar. Nánari upplýsingar um þessar verndarráðstafanir fást á netfanginu hér að ofan.

Hversu lengi varðveitum við upplýsingar?

Við varðveitum persónuupplýsingar ekki lengur en nauðsynlegt er vegna þess tilgangs sem þeirra var aflað fyrir eða lög krefjast.

  • Bókhaldsgögn: Reikningar og önnur gögn sem falla undir almenna varðveisluskyldu bókhaldslaga eru varðveitt í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.
  • Pöntunar- og þjónustugögn umfram bókhaldsgögn: Varðveitt í allt að þrjú ár frá síðustu pöntun, svo hægt sé að sinna kvörtunum, gallamálum og þjónustu.
  • Almennar fyrirspurnir: Varðveittar í allt að eitt ár eftir að erindi hefur verið afgreitt.
  • Gögn vegna ágreinings: Nauðsynleg gögn geta verið varðveitt meðan mál er óútkljáð og meðan þörf er á þeim vegna réttarkrafna.
  • Tæknilegar skrár og vafrakökur: Varðveittar í allt að tvö ár, eða skemur eftir eðli hverrar vafraköku.

Að varðveislutíma loknum er upplýsingum eytt eða þær gerðar ópersónugreinanlegar.

Öryggi upplýsinga

Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, glötun og misnotkun. Aðgangur er takmarkaður við þá sem þurfa upplýsingarnar vegna starfa sinna.

Ekki senda full kortanúmer eða öryggisnúmer greiðslukorta í tölvupósti til okkar.

Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum getur þú, eftir því sem við á:

  • Óskað eftir aðgangi að persónuupplýsingum þínum og afriti þeirra.
  • Óskað eftir leiðréttingu rangra eða ófullnægjandi upplýsinga.
  • Óskað eftir eyðingu eða takmörkun vinnslu.
  • Andmælt vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum.
  • Óskað eftir flutningi upplýsinga þegar skilyrði þess réttar eru uppfyllt.
  • Afturkallað samþykki þegar vinnsla byggist á því.

Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu sem fór fram áður en það var afturkallað. Réttur til eyðingar getur verið takmarkaður, til dæmis vegna lögbundinnar varðveislu bókhaldsgagna.

Sendu beiðni á stefansvan@gmail.com. Við getum þurft að staðfesta auðkenni þitt áður en upplýsingar eru afhentar eða þeim breytt. Beiðnum er almennt svarað innan eins mánaðar. Ef lög heimila lengri afgreiðslutíma færðu upplýsingar um það og ástæður tafarinnar.

Kvartanir

Þú getur haft samband við okkur ef þú hefur athugasemdir við meðferð persónuupplýsinga þinna.

Þú átt einnig rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd. Ekki er skilyrði að hafa fyrst samband við Stefánsbúð.